Oily skin care

Lína fyrir feita húð

Þegar að húðin er feit er jafnvægi hennar ekki í lagi. Feit húð hefur þá tilhneygingu til að glansa, hvort sem hún er förðuð eða ekki. Húðin framleiðir of mikið af fituefnum sem nefnast Sebum og gerir það að verkum að hún myndar opnar húðholur og eykur á óhreinindi hennar. Öll fita sem liggur á yfirborði húðar sópar einnig að sér óhreinindum úr umhverfinu.  Opnar svitaholur og önnur óhreinindi eiga auðvelt með að myndast, húðin er oft gróf og lýti svo sem bólur og fílapenslar hafa myndast á yfirborði húðarinnar.

Dauðar húðfrumur stífla gjarnan húðholurnar, þannig að húðin getur ekki losað sig við alla þessa fitu. Bólgur byrja því að myndast í dýpri lögum húðarinnar. Önnur krem og efni sem við berum á yfirborðið kemst því ekki niður í húðlagið til að vinna þar sem skildi.  Húðin verður því hrjúf, daufleg, viðkvæm og líflaus sem stafar m.a, af rakaleysi hennar á yfirborðinu.

HVAÐ ER TIL RÁÐA ?

Við verðum að koma á jafnvægi fituframleiðslu kirtlanna í húðinni. Til að ná fullkomnum árangri þarf húðin að fá hjálp til að ná réttu jafnvægi, einnig þarf að gefa henni raka, verja hana fyrir utanaðkomandi þáttum, gefa henni matta áferð meðal annars til að viðhalda farða.

Hydra matt gel
Gel sem gefur matta áferð. Það stuðlar að eðlilegri framleiðslu fitukirtlanna og gefur húðinni fullkominn raka og vörn. Gelið hefur samherpandi áhrif á húð og svitaholur, en einmitt opnar húðholur eru eitt af aðaleinkennum feitu húðarinnar.  Einnig hverfur roðinn sem oft eru umhverfis bólur. Farðinn helst á allan daginn. 24 stunda krem.

Inniheldur:
Ger, B5-próvítamín, B6-, B3- og H-vítamín - sem hreinsar, kemur jafnvægi á offramleiðslu fituefna.
Upptökupúður - Gefur húðinni matt yfirbragð.
Möndluprótín - Mýkir og veitir raka í yfirborðslögum húðarinnar.

Active krem
Flýtir fyrir myndun nýrra húðfruma, hefur græðandi áhrif á húðina og er bólgueyðandi. Active kremið gefur yfirborði húðarinnar einnig raka og hefur róandi áhrif.  Active kremið er algerlega fitulaust. Sérstaklega ætlað fyrir feita vandamála-húð.  Hentar vel karlmönnum sem fá bólur og upphlaup eftir rakstur. 24 stunda krem.
Markhópur: fyrir feita húð, vandamálahúð, bólur, fílapenslar, bólgur og viðkvæma húð. Einnig fyrir herra sem fá húðvandamál eftir rakstur.

Inniheldur:
Líförvandi korn - sem Örvar frumuendurnýjun.
Lakkrís, Allantoin og Lichen blanda - sem Vinnur gegn bakteríum og bólgum.

Absorbant maski
Maski fyrir feita húð, þurrkar upp fílapensla, hefur samherpandi áhrif, minnkar fituflæði og dregur úr óhreinindum. Húðin verður björt, hrein og laus við allan gljáa og lítur heilsusamlega út. Auðveldur í notkun, einungis að bera létta umferð af maskanum á húðina og láta vera í minnst 10 mín. Maskann má nota 2svar í viku og jafnvel oftar. Maskann má hafa á bólunni eða á fílapenslum yfir nótt  til að þurka upp.
Maskann má ekki nota á augnsvæði eða á rakaþurfi svæði.
Markhópur: feit húð, vandamálahúð, opnar húðholur, gróf húð og fílapenslar.

Oil controle serum
Gefur matta áferð og hjálpar til við að koma á jafnvægi í fituframleiðslu húðarinnar.
Hefur úrgangslosandi áhrif. Gefur húðinni skínandi og heilsusamlegt útlit. Flýtir fyrir nýmyndun heilbrigðra húðfruma. Hefur bólgueyðandi áhrif. Gefur húðinni raka og mýkt. Þetta er vökvi sem fer auðveldlega inni í húðlagið og gefur algerlega matta og mjúka áferð
Gefur margfaldan árangur með reglulegri notkun tvisvar á dag, hvort sem um unga eða eldri húð er að ræða.
Notkun: Setjið nokkra dropa í lófann og berið á allt andlitið og hálsinn með fingurgómunum, nuddið létt. Berið svo andlitskrem (Hydra Matt eða Active Krem) á eftir. Við mælum með að nota oil control serum í 15 – 20 daga sem meðferð, notið kvölds og morgna.

Inniheldur:
Jurtakraftur (Burdock, sítróna, vætukarsi, bergflétta, sapónín og salvía) - sem kemur jafnvægi á seytiefni fitukirtla, hreinsar og dregur saman húðholur.
Ger, B5-próvítamín, B6-, B3- og H-vítamín - sem kemur jafnvægi á offramleiðslu fituefna.
Ananaskraftur - sem kemur jafnvægi á keratínframleiðsluferli

Purifying serum
Mjög virkur serumvökvi sem hentar einkum vel þeim sem eru með fílapensla, (opna eða lokaða), ör, bólgur, bólur og acnehúð.  Vökvann má aðeins nota staðbundið (á sjálft vandamálasvæðið) vökvinn fer hratt og örugglega ofaní húðlagið. Með reglulegri notkun tvisvar á dag þurrkar serumvökvinn upp fílapensla og bólur. Húðin verður mýkri og fær heilbrigt útlit.

Inniheldur:
Sverðlilja, sínk og vatnsleysanlegt A-vítamín - sem hreinsar húðina kemur jafnvægi á framleiðslu fituefna.
Lakkrís, Allantoin og Lichen blanda - sem vinnur gegn bakteríum og bólgum.

Notkun: Berið staðbundið á andlit, háls og jafnvel bak. Mælt er með notkun Active krems eða Hydra Matt yfir ef um andlitið er að ræða.  Sem meðferð er mælt með að nota kvölds og morgna, í um það bil 1 mánuð, en ef um slæm svæði er að ræða má nota efnið allt að þrisvar á dag, en draga úr notkun ef mikill þurrkur myndast.
Til að viðhalda náðum árangri er mælt með 1-2 svar í viku eftir þörfum húðarinnar.
Oft kemur smá sviði meðan verið er að bera vökvann á, en það er eðlilegt og hverfur hann um leið.

Til glöggvunar:

Feit húð:
Purifying Serum + Hydra Matt. Kvölds og/eða morgna.

Húð með fílapensla:
Purifying Serum + Active krem. Kvölds og/eða morgna.

Feit húð með bólu/fílapensla vandamál:
Morgnanna: Purifying Serum + Hydra Matt
Kvöldin: Purifying Serum + Active Krem.

Eftir stöðuga notkun í 1-2 vikur getur verið að nokkur óhreinindi í undirborði hafa nú komið upp, þá er einnig mælt með notkun á Absorbant maskanum, aðeins á þau svæði þar sem vandamálið er.